Atburðarteljari

Prófíll

  • Nafn: Lára Björg Grétarsdóttir
  • Staður: Reykjavík
  • Atvinna: Sjúkraliðanemi/móttökuritari á slysa- og bráðadeild LSH
  • Hjúskaparstaða: Með honum Hafsteini mínum:*
  • Um mig: Ég er 20 ára gömul, er í fjölbraut í Breiðholti á sjúkraliðabraut. Ég á lítinn strák sem heitir Grétar Snær og hann fæddist 7 Mars 2005 (reiknið nú) Ég ætla í Háskólann eftir útskrift annað hvort í Hjúkrunarfræði eða jafnvel fer ég í læknisfræði...

Könnun

Hvernig á ég að hafa hárið á mér?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Loksins, loksins loksins!!

12. maí 2009 klukkan 12:49
Éééég hlakka svo til... ég hlakka alltaf svooo tiiiil!... Nánar
Lára Björg Grétarsdóttir
4 athugasemdir

Gleðilega páska!!

13. apríl 2009 klukkan 11:21
Búið að vera frábært!... Nánar
Lára Björg Grétarsdóttir
Engin athugasemd

Nýr skóli.. nýtt allt!

28. janúar 2009 klukkan 13:13
jebsírúní... Nánar
Lára Björg Grétarsdóttir
1 athugasemd

Áramótaheitin mín

02. janúar 2009 klukkan 11:12
Ég skal standa við þetta!... Nánar
Lára Björg Grétarsdóttir
Almennt | 2 athugasemdir

Jóla hvað?

17. desember 2008 klukkan 13:49
Skildi það vera jólahjól?... Nánar
Lára Björg Grétarsdóttir
Almennt | 2 athugasemdir

Millirifjagigt

21. október 2008 klukkan 23:12
Úff, já, í augnablikinu þjáist ég af því!... Nánar
Lára Björg Grétarsdóttir
2 athugasemdir

Safnar

08. október 2008 klukkan 10:51
Hafið þið pælt í því hvað fólk er alltaf að safna einhverju? Eruð þið að safna einhverju? Ég man eftir því þegar ég var alltaf að safna "do not eat" kúlum, hahahah skrítið... en  þið?:D
Lára Björg Grétarsdóttir
1 athugasemd

Er ekki kominn tími til?:D

27. september 2008 klukkan 11:48

Vaaá.. eruð þið að grínast hvað er langt síðan maður hefur komið inn að blogga?! Maður er bara eitthvað svo á kafi í öllu, að vera í skóla, vera mamma, vinkona, kærasta og HÚSMÓÐIR! TAKK FYRIR PENT!!

Fjölskyldan:
     - Það er kominn nýr meðlimur hjá Önnu systir og co. maður fer nú að velta því fyrir sér hvort þau ætli ekki að fara að hætta þess, komin með 3, júú.. ætli þetta sé ekki komið gott:p Allavegana.. Hann fæddist 31.07 og heilsast vel!
     -Mamma er byrjuð á danska kúrnum hmm.. við skulum athuga með það..
     -Dóri bróðir átti afmæli 18 september og varð 29 ára!! Vaaá.. við skulum ekki einu sinni pæla í því að bróðir minn sem var svo hipp og kúl hérna áður er bara orðinn kall!
Skólinn:
     -Það gengur ágætlega, samt agalega mikið að gera
     -Uppáhaldsfagið mitt að þessu sinni er næringarfræðin og ég er orðin svo meðvituð um hvað ég er að láta ofan í mig og það hræðir mig soldið þegar ég pæli í því.. Það er ábyggilega rosalega gaman að borða með mér þar sem ég veit nákvmlega hvað fólkið er að éta.. Haha
     -Söngvakeppnin er vonandi á næsta leyti og já, ég ætla að taka þátt, kannski bara síðasta skipti sem maður tekur þátt!
Grétar Snær:
     -Hann er fyndinn gæji, Hann er sko 3ja ára, en hann er samt alveg að verða 6 ára, rosalegur gæji og maður sér það alveg að það er verðandi hjartaknúsari, soldið góður með sig, enda hefur ekki nokkra ástæðu til annars:P Hann er byrjaður á nýjum leikskóla sem er staðsettur í Reykjanesbæ, nánar tiltekið í Njarðvík, honum finnst hann frábær og hlakkar mikið til að vakna á morgnanna til að fara í leikskólann.:)
Ég um mig frá mér til mín:
     -Ég átti afmæli 7 sept eins og flest ykkar vita og var haldið afmæli, mikið drukkið, mikið borðað og mikið dansað! Hafsteinn minn kæri gerði þetta allt mögulegt og þetta hefði aldrei orðið besta afmæli ever ef hann hefði ekki farið og græjað allt, ég þurfti ekki að gera neitt! Svaf bara til hádegis! Nohh..
     -Við fluttum inn 2. september og búum á stúdentagörðunum á vegum Keilis, Reykjanesbær, það er æææðisle íbúð, risastór, 2 baðherbergi, 3 svefnherbergi, risa eldhús og bara ýýýkt kósý:D Grétar getur meira að segja hjólað þar inni, nóg er plássið! Grétar á bílarúm sem afi hans gaf honum og hann var svo ánægður með það að hann vildi taka það með í bað! Ég fíla mig í botn sem húsmóðir, elda þrífa og baka en Hafsteinn er líka duglegur að elda.. (ég myndi segja að þrífa, en þá væri ég að ljúga)
     -Ég er að fara að skipta um skóla um áramótin og fer þá í FS í Reykjanesbæ.
     -Ég er mikið búin að vera að pæla  í að verða rithöfundur.. hvernig lýst ykkur á? Ég er að pæla í að gera bók um mig, æskan með alkohóli.. en það er búið að vera í hausnum á mér í dágóðan tíma.. gæti orðið hittari? mér er samt svosem sama hvort sem það verði einhver hittari eða ekki.. ég ætla mér bara að gera bók:D
     -Ennþá að vinna á slysó.. tími ekki að hætta, þetta er svo frábær staður, svo gaman, svo mikið að læra, svo mikið að sjá!Er að pæla í að sækja um einhversstaðar annarsstaðar til að klára starfsþjálfunina mína, ég og Anna ætlum saman á deild, ekki búnar að ákveða hvert..
     -Nú ætla ég að fara að vera duglegri í ræktinni, þetta gengur bara ekki lengur, maður er að alveg að kafna liggur við þegar maður er búinn að labba upp heima (búum á efstu hæð)

Ekki mjög skemmtilegt blogg? Ég veit, ég fann að þegar á leið, var þetta ekki svo spennandi, ég er komin með svo leið einmitt á svona týpískum bloggum þar sem alltaf það sama er í gangi, alltaf hvað fólkið var að gera í dag og í gær.. Nei,.. þið eruð heldur ekki vön því að fá svona frá mér, málið er bara það að mig langar svo að Anna systir getu fylgst með mér , og þannig að hún fær smá púls af því sem ég er að gera.

Allavegana.. Þar sem ég er orðin 20 ára þá ætla ég að fara að vera duglegri að blogga! Hahahahahaha

Lára Björg Grétarsdóttir
3 athugasemdir

Jæja þá

30. júlí 2008 klukkan 11:23

Verslunarmannahelgin:  Hvað getur maður gert fyrir lítinn pening um helgina? Ég er nebblega í þeirri aðstöðu að ég er ekki að vinna, Grétar er hjá pabba sínum og Haffi náttúrlega líka í fríi en málið er að Haffi er á sýklalyfjum útaf streptakokkasýkingu(greyið litla) og má því af leiðandi ekki drekka þessa helgi:/ Hversu fúlt er það! En.. ég meina.. eins og Haffi sagði við mig um dagin.. "við eigum eftir að fá ábyggilega 50 sumur saman" (rjómantískt) Einhverjar uppástungur? á einhver tjald kannski til að lána mér?:P
Sumarfríið: Ég er að fara í sumarfrí með litla gaurnum mínum eftir tæplega viku og ég get ekki beðið, þetta er búinn að vera svo lanur tími sem hann er búinn að vera hjá pabba sínum og ég er að verða geðveik af því að sjá hann ekki, en þegar ég hringi í hann þá er alltaf svo mikið ð gera hjá honum að hann má ekkert vera að því að tala við mömmu sína:/ Ég ætla að hafa það rosalega gott með honum, fara með honum í bíó, sund og eitthvað rosalega skemmtilegt:D:D Ég talaði við hann í gær og ég fékk bara kökk í hálsinn af því að heyra í honum, ég sakna hans svo mikið, ég hef aldrei verið svona lengi án hans og ég er bara ekki heil!
Húsakaupin: Við fundum fullkomið einbýlishús, vorum búin að kaupa það, búið að óska okkur til hamingju, komumst í gegnum greiðslumat, léttilega og áttum bara að koma saman með seljandanum og skrifa undir, þetta var pottþétt! En við biðum og biðum, í 2 vikur og það endaði með því að Haffi hringdi og spurði frétta.. fengum við að vita að þetta gekk ekki upp vegna þess að húsið var í bullandi veði þannig að þetta hús er ekki seljanlegt!!! Fuck that!! Við erum búin að vera skoða hús sem eru svo miklu flottari en það gamla rusl!! Við bara héldum áfram og okkur miðar vel áfram búin að vera að skoða mikið af húsum og erum meira að segja orðin soldið skotin:)híhíhí En vonandi fer þetta að sjást í betri ljósi:)

En jæja.. ég er í vinnunni og er að fara að fá mér að borða! Bæjó


Lára Björg Grétarsdóttir
Engin athugasemd

Pælið í þessu!

01. júlí 2008 klukkan 02:27
Þegar maður var lítill, fór maður einhverntíma í fyrsta skipti einn út að leika, án þess að hafa mömmu eða pabba með... en hafið þið pælt í því að einn daginn fór maður út að leika og það var í síðasta skipti sem maður fór og lék sér.. Hvað ætli maður hafi gert í síðasta skipti sem maður fór í einhver ímyndunarleik, þar sem maður var prinnsessa, indjáni eða bara á róló, eða hvað það var nú sem maður gerði, jújú, auðvitað leikum við okkur ennþá, enn það var samt einn daginn sem við fórum út að leika sem börn og gerðum það í síðasta skipti, urðum unglingar og fórum að gera eitthvað allt annað, tölvurnar, vinirnir og að þola ekki foreldrana var aðalið.
Ég og Hafsteinn lágum uppí rúmi um helgina og ég kom með þessa pælingu og þetta er soldið mögnuð pæling, samt sorgleg, það var svo óótrúlega gaman að vera barn og þurfa ekki að hugsa um neitt nema sjálfan sig. Ég sakna þess. Alltaf þegar ég keyri framhjá gamla grunnskólanum þá sakna ég hans svo mikið, vildi getað upplifað þetta aftur, ójá.
En já, enn ein næturvaktin farin af stað hérna á slysó, alltaf jafn spennandi, en ef ég á að segja eins og er þá væri ég alveg til í að vera heima sofandi núna hjá honum Grétari mínum..
Vitiði.. Það er alveg merkilegt hvað sumarið er önugur tími í lífi allra finnst mér, eins og við stelpurnar ætluðum að reyna að hittast og fara út að borða, en nei nei, ekki hægt vegna þess að að við allar á sitthvorum tímum erum fullbókaðar í sumarstússi alveg þangað til í ágúst, það verður að bíða..:/
Ég og Hafsteinn erum í íbúðar/húsaleit og gengur bara ágætlega, erum með augastað á húsi sem okkur langar í, það kemur betur í ljós síðar. En allavegana erum við Grétar að fara að flytja s.s. til Njarðvíkur a.k.a. Reykjanesbær Það verður mikið rót en mikið gaman, og vinkonur mínar elskurnar mínar, þið verðið bara að vera duglegar að koma í heimsókn:)
Grétar var að flytjast yfir á stærri deild, ekki beint stærri bara fyrir eldri krakka, þessi elska er svo duglegur, hann er orðinn svo mikill gaur, alveg hættur með bleyju á dagin og næturnar og gengur svona svaka vel:) Gamla deildin hans heitir Ungadeild en núna er hann kominn á kríudeild, svo fer hann auðvitað á splunku nýjann leikskóla núna í lok sumars eða í haust þegar við verðum flutt:)
Það væri svo gaman að vera að fara eitthvað í sumar en í þessum íbúðarhræringum þá verður lítið gert, geri ég ráð fyrir, förum þá í vel valdar útilegur:)
En jæja. Ætli ég fari ekki í einhvern lúðaleik á netinu eða jafnvel að reyna að klára Sölku Völku sem ég er að lesa núna, með þeim betri bókum sem ég hef lesið, er búin með fyrsta bindið, er að reyna að klára:)
Lára Björg Grétarsdóttir
6 athugasemdir